Kolmúli
22.04.2008 21:20:45 / kolmuli

jæja þá---loksins

Eftir einhverja tregðu kemst loksins smá blogg á síðuna.
Einhverra hluta vegna komst ég aldrey inn á síðuna:$
Ég ætlaði semsagt að blogga þegar afi átti afmæli en komst bara núna inn á síðuna. En mig langar fyrst og fremst að segja hvað það var gaman að hitta alla ættingjana. Þar sem afmælið gekk í alla staði vel var mikill + að hitta sína nánustu. Þar var þessi eldheita myndasýning þar sem kolmúlafólkið var í sviðsljósinu. Skyndilega fannst mikil reyklikt enda sýningin sjóðheit, nema að þá var víst farið að rjúka úr hausnum á Kristjönu hans Jóseps. Ekki það að hún skyldi ekki fatta ættina heldur náði víst borðskreytingin til hennar -vonandi jafnaði hún sig á þessum hamförum. Nú terturnar og allt sem var í boði :haha:klikkkkkaði ekki enda væri bleik brugðið ef svo væri hjá þessari ætt.

Nú um páskana fórum við svo á ættarmót númer tvö hjá Jónu og Rúnari á Seyðisfirði. Það var heldur betur gaman líka að sækja þau heim, endan klikkar hún ekki á tertunum jamm-jamm en svona fyrir utan þær þá er gaman að koma til þeirra líka:d
Það var reyndar ekki gott veður á leiðinni en eins og sannir Íslendingar þá voru allir samferða heim enda blindbylur á Fjarðaheiðinni, en hvað gerir maður ekki til að komast í heimsókn til ættingjanna?

Nú síðustu tvær helgar hafa farið í það að þjóna til borðs fyrir Bautann á Akureyri. Alcoa hélt þessa líka flottu árshátíð í íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði. Það var jú unnið frá 19:00 - 4:00 en það var svo gaman að ég gæti næstum gert þetta allar helgar;) Ég verð nú að segja að allur að búnaður hjá Bautanum var tær snilld og maturinn æðislegur.


Annars er það að frétta að maður er bara alltaf í vinnu og svona ásamt áhugamálinu(blakinu) en fljótlega hætti ég í skrifstofuvinnunni og dríf mig til Færeyjar ásamt strákunum mínum það er að segja í júni (tíminn er svo fljótur að líða).
Jæja þá loka ég þessu bloggi í bili góðar heilsur.

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 21:32:43 / kolmuli

nýtt blogg

Hæ góðu ættingjar takk fyrir kveðjurnar og síðast en ekki síst hvatninguna um að blogga :)

Því miður komst ég ekki á ættarmótið en sem betur fer var víst góð mæting. Ég hitti nú einn frænda minn (og okkar) á Kátum dögum á Þórshöfn sem vildi endilega komast á ættarmót hjá ættinni og ég sagði honum að hann væri að sjálfsögðu velkominn. Hann heitir Rúnar og eru hann og mamma þremenningar (ein glötuð í ættfræðinni) vonandi  skýrir það eitthvað :s konan hanns heitir Linda.

Jæja nú styttist í Franska daga og ættingjarnir fara að streyma austur og það verður nú skemmtilegt að sjá framan í þá.

Ég, Elvar og Stefán fórum Reyðarfjarðarströndina um daginn og renndum í hlaðið á Kolmúla. Þar hefur lítið breyst nema að það er að verða frekar gróið fyrir framan Jónasarhúsin. Þar sem afi var ekki heima var ekkert stoppað.

Annars er lítill tími fyrir blogg þar sem maður er á kafi í vinnu, en ég er nú að vinna sem bókari hjá Loðnuvinnslunni ásamt ýmsum skrifstofustörfum, sé um þrifin og þvottinn á heilsugæslunni ásamt þvottinum á sjúkrabílunum. Það kemur svo fyrir að ég fer inn í sjoppu líka þannig að maður gerir nú ekki mikið annað (enda er þetta nú bara bilun)Nú bíður maður bara eftir sumarsfríinu en ferðinni er heitið til Danmörku í fjórtán daga.

Kveðja til allra . Borghildur

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 19:33:05 / kolmuli

Gleðilegt sumar

Sól skín í heiði og sumarfýlingurinn er á útopnu enda svo glæsilega gott veður þrátt fyrir að það mætti vera hlýrra úti.

Gleðilegt sumar öll sömul.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 23:05:46 / kolmuli

Munaði litlu

Það munaði litlu að ættarhöfðinginn færi inn í Landsbankann á Fáskrúðsfirði þar sem hann skautaði niður Borgarstíginn rétt áður en Þórhildur keyrði þar framhjá. Ekki mátti miklu muna að úr yrði stórslys þar sem Þórhildur var að koma að brattanum. Sá gamli lenti með trýni bílsins upp á stéttina við inngang bankans þar sem fjöldi krakka leika sér oft. Sá gamli var auðvitað kominn á sumardekkinn eins og margir aðrir enda mikil blíða búin að vera hér fyrir austann:). Nú sem betur fer urðu engin slys á fólki og vonandi gengur betur næst.;) 

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 18:50:47 / kolmuli

Gleðilega páska

Ég hef nú mikið reynt að setja inn myndir en einhverra hluta vegna vill netið ekki hleypa mér inn með þær. 

Ein frænkan úr ættinni safnaði alltaf ungunum af páskaeggjunum sínum sem lífgaði mikið upp á tilveruna hjá okkur krökkunum þegar við vorum lítil. Ég hef nú tekið upp þennan sið en nú eru ungarnir ekki aðeins gulir heldur fjólubláir, ljósbláir, appelsínugulir og með allavega hatta. Þetta er nú bara gaman. Páskaveðrið er komið með smá snjómuggu og auðar götur þar sem snjókornin hverfa í sortann um leið og þau lenda á malbikinu nýkomin úr löngu ferðalagi um himinhvolfin. Krókusarnir fela sig undir mjúku snólagi og bíða þess að vorsólin vermi upp næstu daga.;) Vorið er að rísa upp úr viðjum vetrarins með tilheyrandi fuglasöngi og gróanda.

Nú er síðan með tímabundið gult útlit í tilefni páskanna (bara nokkuð góð tilbreyting) . Gleðilega páska öll sömul.

Kv Borghildur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 16:04:24 / kolmuli

Hann á afmæli í dag

 Hann á afmæli í dag, hann á afmlæli í dag, hann á afmæli hann afi hann er 94 í dag.:lol:

Ekki eru nú veðurguðirnir að fagna mikið því að hér er þvílík hríð:(

Hvort ég ætla á ættarmót í sumar - veit ekki - ekki útilokað - en ekki ákveðin:S

Kveðja Borghildur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 10:03:56 / kolmuli

Ættarmót

Ættarmót........Ættarmót.......

Já það verður ættarmót í Þjórsárveri helgina 29 júní - 1 júlí í sumar. Í tilefni þess er komin ný heimasíða sem heitir kolmuli.com. Kolmúlaættin er því mjög lukkuleg með að eiga tvær heimasíður ;) enda mikil umferð á þessari síðu eins og sjá má:lol:

Nú ættin hefur verið mjög dugleg hingað til að mæta á ættarmót og sjálfsagt verður það eins núna. Þannig að stóra spurningin er hverjir ætla á ættarmót í sumar?

kv. Borgh.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 11:03:33 / kolmuli

Á gamlar slóðir

Fyrir nokkrum dögum fórum við mæðgurnar ásamt Þórhildi systir og Eiði Loga fyrir nesið þ.a gömlu leiðina til Reyðarfjarðar og kíktum við á Kolmúla þar sem afi var að sjálfsögðu. Það er nefnilega  auðveldara að heimsækja hann þar heldur en inn á Uppsölum. En við bjuggumst einmitt við að hann væri í sveitinni þar sem veðrið var svo gott og góð færð. Við kíktum á gamla þar sem hann var að gera eitthvað við bílinn og síðan var farið inn í hús, smá spjallað og síðan haldið áfram á Reyðarfjörð.

Ekkert amaði að þeim gamla enda alltaf eins og unglamb. Maður kom að máli við mig sem sagðist hafa séð undur veraldar í fyrsta skiptið á ævinni (en það var að sjálfsögðu Guðjón Daníelsson:lol:) þar sem hann hafði ekki séð hann í 20 ár. En málið væri það að sá gamli hefði ekki elst um einn dag. Vonandi njótum við afkomendur hanns þessa eiginleika líka ;)

Gaman væri nú ef afkomendur Kolmúlaættarinnar kæmu með eitthvað skemtilegt innlegg á síðuna8|. Um jólin var ég að reyna að fá afa til að skoða netið en hann þvertók fyrir það! en kannski fæst hann til þess ef einhverjir skila kveðju til hanns hér:)

Eigið góða daga. BHS

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 16:47:45 / kolmuli

Sól sól skín á mig

Nú líður að því að sólin teygir geisla sína yfir fjöllin. Sólarpönnukökurnar ilma á borðum landsmanna og það geislar af fólki. Á Kolmúla er það víst 11 janúar sem vanalega var sólarpönnukökudagur en þess má geta að hann er 28 janúar á Fáskrúðsfirði og um 7 janúar á Reyðarfirði. Alltaf var jafn gaman að koma í sveitina og fá pönnukökurnar hennar ömmu! Það voru að sjálfsögðu bestu pönnsurnar í heimi.

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 08:50:49 / kolmuli

Smá speki

Ég fann þetta á netinu svona bara til gamans. Kolmúli á hinum ýmsum málum.

 Latína - merluccius merluccius,

 norska - lysing,

 danska - kulmule,

færeyska - lysingur,

 enska - common hake,

 franska - merlu commun.

 Þannig að orðið lysingur sem maður heyrði í æsku var þá ekki af lýsisflöskunni hans afa :haha: (hver veit?) heldur færeyska enda mikið af færeyskum fiskimönnum sem lágu við Vattarnes um miðja síðustu öld. Hafið það gott kveðja Borghildur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 09:56:11 / kolmuli

Skoðið

Maður er að fikra sig áfram í síðugerðinni og þetta er allt að skríða saman en endilega skoðið eldri færsluna í janúar sem er upphafsíða bloggsins og veitir ykkur frekari upplýsingar um síðuna. :) Kveðja Borghildur

» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan
RSS tengill